Reglur um útleigu orlofshúsa

Vetrarútleiga
Flest húsa okkar eru til útleigu að vetri til. Þá er ekki stuðst við punktakerfi heldur ræður hver pantar fyrstur. Vetrarúthlutun skerðir ekki rétt til sumarúthlutunar nema um páska.  Helgar leigjast út frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 12:00 á mánudegi.  Mánudagar til föstudaga eru leigðir út í dagsleigu og því hægt að lengja helgar í annan hvorn eða báða enda.

Pantað á vefnum
Þegar pantað er á vefnum þarf að velja „Innskráning“ úr valmynd.  Næst er skráð inn rafræn skilríki eða íslykill.  Þá er valið „Laus tímbil“ úr valmynd.  Veljið viðeigandi mánuð og tímabil.  Þá þarf að ýta á hnapp neðst á síðunni „Senda“ og siðan „Staðfesta“.  Næsta skref er að „Samþykkja“ skilmála og síðan þarf að haka við „Samþykkt“ og velja hnappinn „Greiða.“  Þú hefur 10 mínútur til að bóka orlofshús eftir það dettur þú út nema þú sért búinn að velja greiðslu í kortagátt þá gefast aðrar 10 mínútur til að greiða með kreditkorti áður en bókun dettur út.  Kvittun og leigusamningur sendist á uppgefið tölvupóstfang að greiðslu lokinni.  Hægt er að greiða með kreditkorti eða debitkorti. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu til að ganga frá pöntunn og greiðslu.

Öryggisnúmerin
Ef slys ber að höndum, hafið þá samband við neyðarlínuna í síma 112 og gefið upp öryggisnúmer hússins sem þið eruð stödd í.

Sumarútleiga (júní-ágúst)
Um miðjann mars er opnað á umsóknir félagsmanna, þar sem gefinn er kostur á allt að 12 valmöguleikum.  Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun.  Úthlutunarreglur er að finna hér að neðan.

Úthlutunarreglur
Á sumrin eru húsin og íbúðirnar leigðar félagsmönnum til vikudvalar í senn. Úthlutun fer fram eftir punkta-kerfi og eru reglur um ávinnslu og frádrátt punkta eftirfarandi:

Ávinnsla punkta
Hver félagsmaður sem greitt hefur fullt félagsgjald ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann er í félaginu.

Frádráttur punkta við úthlutun
– Frá 9. júní til 23 júní  eru dregnir frá 26 punktar.
– Frá 23. júní til 4. ágúst eru dregnir frá 36 punktar.
– Frá 4. ágúst til 18. ágúst og einnig um páska eru dregnir frá 26 punktar.
– Fyrir orlofsávísun vegna leigu á ferðavagni eru dregnir frá 15 punktar.                                                                                                                                                                                                                                              – Við úthlutun á öðrum tímum koma engir punktar til frádráttar.

Ef fleiri en ein umsókn er um sama húsið á sama tímabili ræður punktafjöldi hver hreppir hnossið. Ef punktafjöldi er jafn ræður sú umsókn sem berst fyrst. Á umsókn um orlofshús er gefinn kostur á allt að 12 valmöguleikum. Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun. Vetrarúthlutun skerðir ekki rétt til sumarúthlutunar.