Fréttir
Mikilvæg kjarakönnun

Mikilvæg kjarakönnun

Félögin sem standa að Húsi fagfélaganna; Byggiðn, MATVÍS, RSÍ og VM hafa sent félagsfólki kjarakönnun sem mikilvægt er að sem flestir svari. Könnunin er á mínum síðum. Markmiðið með könnuninni er að fá sem gleggsta mynd af kjörum félagsfólks.

Könnunin er mikilvægur liður í undirbúningi næstu kjaralotu, sem hefst strax í haust. Mikil verðbólga og háir vextir hafa á undanförnum mánuðum rýrt kjör okkar verulega. Góð þátttaka í könnuninni er forsenda þess að samninganefndir iðnaðarfólks mæti vel undirbúnar til komandi kjaraviðræðna.

Jón Bjarni Jónsson, formaður Byggiðnar:

„Það er alveg ljóst, miðað við stefnu og áætlanir stjórnvalda, að við þurfum að gæta vel að réttindum og kjörum byggingamanna. Kjarakannanir eru mikilvægt verkfæri til að átta okkur á stöðu félagsmanna okkar. Ég hvet félagsmenn eindregið til að svara könnuninni og taka þannig þátt í undirbúningi komandi kjaraviðræðna.“

Fara á mínar síður.