Fréttir
Jónsmessuhátíðin 2023

Jónsmessuhátíðin 2023

Hin árlega Jónsmessuhátíð félagsins verður haldin helgina 24.– 26. júní á jörðinni Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi. Dagskrá verður allan laugardaginn fyrir fjölskylduna. Í boði verður meðal annars barnasmiðja, frisbígolf, bingóganga, brekkusöngur og dansleikur.

Við leggjum áherslu á fjölskylduvæna útilegu þar sem allir geta tekið þátt. Næg tjaldstæði og frábær snyrtiaðstaða er á Stóra-Hofi, sem er rétt áður en komið er að Árnesi í Þjórsárdal, í um 100
kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Á myndinni er glæsilegt þjónustuhús við tjaldstæðið á Stóra-Hofi.